Milano gerði mig hamingjusama í dag.

Jæja núna er rétt tæpt 1 ár síðan ég flutti frá Milanó aftur til Íslands og voru tilfinningar mínar blendnar við ákvörðuntökuna mína. Eftir 7 ára dvöl mína þar þá finnst mér ég alveg vera orðin hálf ítölsk og það eru skringilegustu hlutir sem ég sakna þaðan. Þegar fólk hugsar til ítalíu þá kemur oft í hugann kaffi, sól, strönd, rauðvín, menning og ekki má gleyma matur... þegar ég hugsa til baka þá sakna ég mest því að það heilsa manni allir hvort sem það er afgreiðslufólkið í búðinni, konan sem ég keypti lottóið af eða barþjóninn á local barnum mínum, ég sakna þess að sitja í tram í gegnum borgina og horfa á blómin en mest sakna ég búðanna og hvernig fólk klæðist. Stílinn í Milano er svo frábrugðinn frá þessum Íslenska en ég er ekki ennþá að skilja "stílinn" sem er hér.. meira og minna allir keppast um að vera örðuvísi að þetta er eins og lífrænt ræktuð, flóamarkaðs, over-sized skrúðganga með marglitað hár - munirinn er sá ef allir vilja skera sig úr og vera örðuvísi þá hver er örðuvísi.. þá er það líklegast bara manneskjan sem er í gallabuxum og stuttermabol jah maður spyr sig! 

Núna er einstaklega skemmtilegur tími að vera í Milan þegar tískusýningarnar eru í gangi, mikið af litríku fólki út um allan bæ og það er einstaklega skemmtileg að fara út að skemmta sér á tískuviku því það eru svo margar uppákomur út um allt... nú sé ég borgina í hyllingum (eftir þetta litglaða og sumarlega sumar sem við erum búin að  eiga hér) 

En aftur að tískunni þá komu New York og einnig London með frekar leiðinlegar sýningar.. Burberry Prorsum sem sýnd var í London var með svipuðum brag og NY, pastel litir í bláu og orange, mikið af blúndu og gegnsæju, mikið brúnt og svart. Ekkert sem ég mun hrópa húrra fyrir EN svo kom mín ástkæra Milano og sneri öllu við, vona að þið sem nennið að spá í há-tísku merki njótið jafn vel og ég gerði: hér er brot af því besta:

 Fendi ss2014

Fendi
 
Fendi

fen_9865_450x675.jpg

 Gucci

Gucci

 Prada

Prada

 Prada

Prada

 

í Milano voru þeir mun litaglaðari og voru sýndir sanseraðir-kjólar, mikið grænt, blátt og hot purple, mjög mikið af allskonar printum og var gaman að sjá hjá Prada að þeir voru mikið með andlits-print. Mæli samt helst með línunni frá FENDI þar sem Karl Lagerfeld fer á kostum eins og vanalega! 

Jæja nú er það bara að fá sér te og skoða detailin á sýningunum.. ég kem sjálfri mér á óvart hversu óspennandi ég get orðið :) 

Detox áfram áfram - held upp á 2 vikna detox með hvítvíni og dýfi Brauði ofaní það og BORÐA.... í næstu viku :) 



og eitt annað heilsublogg með Detox ívafi!

Núna er komin vika í þessu blessaða Detoxi mínu og ég er á lífi.. Langar að deila því með ykkur svona þar sem allir virðast hafa eitthvað um málið að segja. Kannski er ég orðin meðvitaðari um hvað er að ske í kringum mig en ég er bara að sjá að það er meira en önnur hver fréttagrein um lífstíl og vandamál fólks hér á þessu blessaða litla landi ef ég er ekki að lesa um einhvern sem sigraðist á einhverju þá er ég pottþétt  búin að lesa yfir mig á fólki sem hefur grennt sig, misst svona svakalega mikið af kílóum með hinum og þessum ráðum en það er ekki alveg tilgangurinn minn hér.

Ég er nú algjör snúður þegar það kemur að mataræði ég þessi týpa sem segi æi ég fór í ræktina svo ég á skilið súkkulaði og ég er líka sú sem að læðist á nóttunni bara til að ná mér í nammi eða snakka og svo maula ég það mjög hljóðlega svo örugglega enginn heyri til mín. Ég á svosem ekkert í vanda með aukakíló en ég er alveg svakalega óholl, ég DRAKK í þátíð um líter af gosi á dag og mikið af skyndibita.. Ég tók 48 tíma í alveg fljótandi, þá bara te, sítrónuvatn, hreinar súpur og var það bara ALLS ekki skemmtilegur tími skal ég segja ykkur og bara ekkert auðvelt.. ég tók sveig fram hjá pizzastöðum bara svo ég mundi ekki stelast inn..  síðan þá er ég búin að vera í hálfum detox, ég borða ekki á daginn en fæ mér kvöldmat.. ekkert hveiti, enginn sykur og ekkert KóK.

Ég ætla samt að mæla með þessu því núna er vika liðin og mér líður frábærlega, miklu meiri orka, ég sef betur, ég meira segja nenni að hreyfa mig ótilneydd! Þetta hentar væntanlega ekki öllum en þetta virkaði vel fyrir mig, svo eftir að naga upp lopann á peysunum sem ég er að prjóna og horfa á allar matarpóstanna á facebook og lifa af þá er ég bara nokkuð góð :) 


Og þá varð það Detox!

Ég er ákaflega áhrifagjörn manneskja og má segja að ég prófi allt sem að nær að snerta áhugann minn. Það var nú þannig að ég er búin að heyra mikið um áhrif á Detox og alla þessa heilsukúra sem eru í gangi en ég er því miður þannig að sjálfstjórnin mín er mjög lítil. Ef ég færi í  lág kolvetniskúr  þá mundi heilinn á mér bara ósjálfrátt kalla á kartöflur og bjór. Svo það er allt eða ekkert svo ég ákvað að prófa Detox en ég meina hvað er það að borða ekki í nokkra daga, jah ég skal segja ykkur það að það er bara alls ekkert eins auðvelt og það hljómar.

Já fyrsti dagurinn gekk svona sæmilega með 10 te bollum, sirca 5 lítra af vatni, súpu of einu boosti...

Er á degi númer 2 og það má segja að hugurinn minn sé kominn á það stig að mér langar fátt meira en að borða te-pokann sem er í te-inu mínu. Núna ætla ég að hætta að dæma fólk sem eru í einhverskonar "kúrum"  því þetta er ekkert auðvelt, segi ég með fullri staðfestingu því er með útnöguð handabök. 

Ætla nú alveg að sjá til með hvort ég mæli með þessum kúr, að minnstakosti er ég mjög svöng en ég las mér til um það að ég ætti að vera með alveg einstaklega hrein nýru núna, semsagt falleg líffæri í dag! 

Jæja farin að drekka sítrónu-vatn og te í eftirmat! 

 

 


Hvað varð um tískuna...

Núna er ég eins og littlu krakkarnir sem bíða spenntir á jólunum eftir að fá að opna pakkana sína, en þannig er ég nákvæmlega þegar tísku sýningarnar byrja og þá sérstaklega Vor-tískan. Fallegu kjólarnir og litirnir setja mjög glatt bros á varnirnar mínar. Nú á mínum 3 degi hitaði ég mér te aldrei slíkum vant (tek það fram að ég er í detox og mun það kannski hafa áhrif á skapsveiflurnar eða að orða það léttar pirrungurinn í mér. Ég kom mér vel fyrir í sófanum, byrjaði að rúlla yfir sýningarnar, brenndi mig á teinu og þar var dagurinn minn búinn... Hvert fór tískan?! Ég tel mig nú hafa ágætis þekkingu á tísku þar sem líf mitt, nám mitt og vinnan mín hefur snúist um þennan merkilega markað síðustur 12 árin en ég veit ekki lengur hvað skal halda. New York er eins stór vonbrigði, þetter eins og hrekkjavaka sem fór alveg úr böndunum.

Alltaf beið ég eftir því góða frá eins solid hönnuðum eins og Veru Vang sem virðist þetta árið halda að allir verða á ströndinni "Alltaf" alla daga næsta árið eða hann elskulegi Marc by Marc Jacobs hann var einn af þeim sem datt inn í diskó þemað en nóg um það ef ykkur vantar búninga hugmyndir fyrir hrekkjavökuna þetta árið þá ætla ég að gefa ykkur smá hugmyndalista, njótið;

 

 

Anna Sui

 

Anna Sui

Blóma-hippa stelpan sem dó úr leiðindum af of dull pastel litum

 

Roddarte

Rodarte

80´s rebel punkarinn með smá keim af 60's diskó kögri

 

Ralph Lauren

Ralph Lauren

Skólastelpan sem varð svo djörf að fara í leður! 

 

Jeremy scott

Jeremy Scott

Hann er einn af þeim mörgum sem misstu sig svo "all-in" í diskóið

 

Marc

Marc byMarc Jacobs

Littla stúlkan í diskó pallíettu gallanum sem klæjaði svo mikið að hún kyrkti sig með leðurreim!

 

Betsy Johnson

Betsy Johnson

Misheppnuð tilraun að vera Madonna in the 80's

 

Ég hef aldrei verið big fan af diskó tímabilinu en það eru nokkuð margir í ár sem greinilega fengu ekki nóg á sínum tíma eða voru of ungir og vilja einfaldlega fá þennan tíma upp aftur, svo ég er alveg einstaklega pirruð yfir sýningunum í ár.. kannski er þetta detoxið sem talar því flest þessi candy-look gera mig bara svanga. 

En já til að gera glaðan dag glaðlegri þá fyrir utan diskó sprengjurnar er allt mjög litlaust sem komið er eins og hefur verið síðasta ár, þá halda áfram svart/hvítu "geomatric" printin einnig mikið af leopard printi og svo eru helstu litirnit svartir, hvítir og bláir.. Nú bind ég allar mínar vonir við Evrópu!!! 

Kveð hér í bili svöng með brennda vör! 


Couture sýningar fyrir vor 2013!

Það er svo gaman að skoða Couture sýningar frá helstu/stærstu tískuhúsum heimsinns. Jafnvel þó fæst okkar munum einhverntímann  eiga þá peninga til að fjarfesta í slíkri flík er alltaf gaman að skoða!

Það sem var athygglisverðasta er að mikið var um stuttklippt svart hár á pöllunum ( stílnum hennar Anne Hathaway) einning eins og svo oft með Couture er svart alltaf algengast og hvítt en einnig mátti sjá mikið af bleiku, rauðu, gull og gulu! Hér koma nokkrir kjólar frá sýningunum:

 Alexis Mabille

 

alexis_mabille.jpg
 
 Armani Privé
armani_prive.jpg

 

Armani Privé

armani_prive_2.jpg

Chanel

chan.jpg

 Chanel

chanel1.jpg

Elie Saab

elie_saab3.jpg

Elie Saab

elie_saab.jpg

Christian Dior

christian_dior.jpg

Christian Dior

christian_dior2.jpg

 Jean Paul Gaultier

jean_paul_gaultier.jpg

 Jean Paul Gaultier

jean_paul.jpg

 Ulyana Segeenko

ulyana_segeenko.jpg

Mæli með sýningunni frá Elie Saab hún er guðdómlega falleg!!!! 

Ansy


Vogue Japan - Julia Frauche

When Snow Falls:
Ljósmyndari: Kenneth Willardt
Stílisti: Tina Chai
Módel: Julia Frauche
 
VOGUE JAPAN Beauty - Janúar 2013
 
6a00e54ef964538834017c3412ef0a970b-700wi_1187206.jpg
 
julia-frauche-for-vogue-japan-january-2013-1-300x384.jpg
 
julia-frauche-vogue-japan-january-2013-5.jpg
 
gxl_50b3dac3-5cf4-4c4a-ac8c-6f3f0a4e4996_1187213.jpg
 
julia-frauche-vogue-japan-january-2013-3.jpg
 
julia-frauche-vogue-japan-january-2013-4.jpg
 

Trend frá Mílanó - Haustið 2013

Þá var lokadagurinn í Milano fashion week karla og var meðal annars sýning frá Giorgio Armani í dag  (vaknaði einmitt klukkan 7 til að undirbúa mig að horfa á hana live) sem að mínu mati er sú flottasta sem hefur verið sýnd "so far". Núna er hægt að sjá hvað verður vinsælt fyrir menn þetta haust þá sérstaklega í Evrópu og það sem er heitast frá Mílano fyrir veturinn er flauels jakkaföt, mikið af munstruðum buxum ,skyrtum og jökkum, einnig sást mikið af leðri, síðum frökkum og þegar kemur að litum þá er blár, rauður og svartur mest áberandi.

Minna var þetta árið af pelsum en mikið var af frökkum með loðskinni og einnig voru mörg flott cape/slár þá sérstaklega spennandi frá merkinu "Les Hommes". Milano startaði þessu afskaplega vel og voru margar spennandi sýningar, fyrir þá allra áhugasömustu þá mæli ég með sýningunum frá  Z Zegna,  Salvatore Ferragamo, Canali og einnig voru stórskemmtileg munstur og litir hjá Moschino. Hér að neðan eru myndir af helstu "it" eða "trendi" haust/vetur 2013-2014 fyrir karlmenn:

Flauel: 

 Canali

canali_-_milan.jpg

DIESEL Black Gold

diesel_black_gold.jpg

 Etro

etro_-_milano.jpg

 Giorgio Armani

giorgio_armani_-_milan.jpg

 Dsquared

_dsquared2.jpg

 Les Hommes

les_hommes-_milan1.jpg

 Hattar voru einnig mjög áberandi á sýningarpöllunum og voru þeir í öllum gerðum og stærðum þetta árið, en samt flestir mjög elegant!! 

Hattar:

Costume National

costume_national_-_milan.jpg

 John Varvatos

john_varvatos_-_milan.jpg

 Giorgio Armani

giorgio_armani.jpg

 Iceberg

iceberg_milan.jpg

 Moschino

moschino_milano.jpg

 

 Leður:

Calvin Klein Collection

calvin_klein_milan.jpg

Umit Benan

umit_benan.jpg

Gucci

gucci_-_milano.jpg

Salvatore Ferragamo

ferragamao_-_mila.jpg

 Belstaff

belstaff.jpg

 

Mustur (Pattern):

Burberry Prorsum

  burberry_prorsum_1187133.jpg

Kenzo

kenzo_-_milano1.jpg

 Vivienne Westwood

vivienne_westwood_-_milano.jpg

Les Hommes

les_hommes_-_milan.jpg

 Moschino

moschino_-_milan.jpg

 

Allt er vænt sem vel er mikið Rautt:

 Alexander McQueen

 alexander_mcqueen_-_london_1187140.jpg

 Kenzo

kenzo_-_milan.jpg

 Iceberg

iceberg_-_milano.jpg

 Burberry Prorsum

burberry_prorsum_1187143.jpg

Þetta var svona það helsta frá Milano, sakna þess samt smá að vera ekki inn um þessa geðveiki sem er þar núna! Eitthvað samt svo skemmtilegt þegar borgin fyllist af fólki og hægt er að fara á tískuviðburði og partý á hverju horni.  Núna er bara að bíða eftir París :) 

- Ansy 


Bestu & Verstu kjólarnir á Golden Globe

Jæja ég sat hér að fylgjast með Golden Globe eða réttara sagt var ég meira að fylgjast með kjólunum, hef minni áhuga á því hver vann hvað!!!! Var svo ánægð að sjá hversu mikið var af rauðum kjólum, og þá fallega rauðum. Margir kjólarnir voru mjög áhugaverðir, mikið af hlýralausum kjólum og alveg dragsíðum. Einnig mátti líka sjá mikið af hvít/beige litum og einnig gull. En eins og ávallt þá leynast líka inn á milli mjög spes "outfit" en jú hver hefur sinn smekk!

Bestu kjólarnir:

Michelle Dockery í Alexander Vauthier

michelle_dockery_in_alexander_vauthier.jpg

Anne Hathaway í Chanel Couture

anne_hathaway_in_chanel_couture.jpg

Claire Danes í Vesace

claire-danes-red-dress-versace-2013-golden-globe-awards-1-300x450.jpg

Emely Blunt í Michael Kors

emely_blunt_in_michael_kors.jpg

Zooey Deschanel í Oscar de la Renta

zooey_deschanel_o_oscar_de_la_renta.jpg

Kate Hudson í Alexander McQueen
 
kate_hudson_-_alexander_mcqueen.jpg
 
Julianne Moore í Tom Ford
 
julianne_moore_-_tom_ford.jpg
 
Einnig er alltaf skemmtilegt að skoða óheppilegu kjólana sem eru jú alltaf til staðar, vona bara að þau hafi tekið þessar ákvarðanir sjálfar þá er ekki hægt að kenna neinum örðum um þessi slys! 
 
Verstu kjólarnir:
 
Halle Berry í  Atelier Versace
 
halle-berry-golden-globes-2013-pictures.jpg
 
Lucy Lu í Carolina Herrera
 
lucy_lu_-_carolina_herrera.jpg
(Þessi kjóll minnir mig alveg svakalega á virkilega ljótan borðdúk frá 1950)
 
Amanda Seyfried í Givenchy Couture
 
amanda_seyfriend_in_givenchy_couture.jpg
(Kjóllinn sjálfur er ekkert ljótur en við húðlitinn hennar og með þessa greiðslu er þetta eins og náttföt)
 
Debra Messing í  Donna Karan & Rupert Sanderson
 
golden-globes-2013-debra-messing_opt.jpg
 
 Jessica Chastain  í Calvin Klein Collection
 
jessica_chastain_-_calvin_klein_collection.jpg
 (Þetta "look" frá toppi til táar er bara engan veginn að virka - Er eins og  90's hobbiti)
 
Þetta voru svona helstu kjólarnir frá verðlaunahátíðinni, hver vann hvað er svo aftur á móti annar handleggur! 
 
-Ansy 
 

Leður, Denim, Munstur, Blúndur og margt fleira hjá Versace í haust!

Loksins eru sýningarnar fyrir haust 2013 að detta inn, þessi tími fyrir mér eru eins og jól og áramót í einum pakka :) "I'm in heaven"

Erfitt er að segja hver helstu trendin verða hjá mönnum/ men line það eru enþá svo fáar sýningar búnar en það sem komið er þá verður mikið af leðri, síðum frökkum, oversized buxur og hattar sem er frábært því ekkert er fallegra en að sjá karlmann með flottann hatt :) 

VERSACE: 

Þessi sýning Men Fall 2013 er án efa ein sú áhugaverðasta.. sýningin var frekar stefnulaus eða má segja allt of mikið að ske á pallinum. Mikil áhrif frá 8 áratuginum og einnig mjög sjáanleg áhrif frá punk tímabilinu. Á sýningarpallinum var allt frá"oversized" leðurjökkum og buxum, út krotað gallaefni, munstrótt jakkaföt með mjög áberandi prenti, litað leður, fínt "lace" (blúndu) efni í nærfatalínunni, móturhjólagalli, og einnig litir eins og rauður, blár, hvítur, grátt, silfur, brúnt og svart. Einnig er mikið af mismunandi mustri, allt frá köflóttu, röndóttu yfir í zebra og eitthvað sem minnir mann helst á eitthvað "sýrutrip"

Hér eru sýnishorn frá sýningunni - brot af því "besta":

vercase_1186940.jpg

Grá Köflótt

versace.jpg

Zebra og sólgleraugu

versace2.jpg

Eitt af sýru munstrunum

versace3.jpg

80's árekstur!

versace4_1186936.jpg

Hvítt blúndu blúnd

versace5.jpg

"Oversized over ovesized gangsta"

versace6_1186939.jpg

já og auðvitað Fur

 Já sýningin er semsagt eins og 5 sýningar settar saman í eitt.. Donatella hefur eitthvað verið ráðvillt um hvað ætti að verða "trendy" næsta vetur! 

En ætla að halda áfram að skoða sýningar og umfjallanir :) 

Xx

Ansy


Blúndu gríma frá Givenchy!

Nú er komið á markaðinn frá tískuhúsinu Givenchy svokallaður blúndu gríma/eða maski! Auglýsingin og hugtakið er samt mjög misvísandi -

givenchy-le-soin-noir-make-up-4.jpg

Þessi gríma á að slétta úr hrukkum og gefa húðinni ferskann og unglegann gljáa. Gríman var ekki notuð í tískusýningunni þar sem að þetta tilheyrir fegurðarlínunni frekar en tískunni. Le Soin Noir Mask kostar 359 Evrur eða um 50 þúsund svo ég vona fyrir þá sem kaupa sér þessa grímu að þeir líti að minnstakosti nokkrum árum yngri en fyrir notkun! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband