H&M eða ekki H&M!
19.1.2012 | 22:39
Íslendingar hafa alltaf verið vitlausir í verslanirnar H&M, get vel skilið það þar sem þessi keðja er einstaklega ódýr og fötin eru oftar en ekki eftirlíkingar frá "high fashion" merkjum. Sem helst má sjá núna t.d. eru eftilíkingar frá Stellu Mccartney, gegnsætt með doppum, stjörnuskreyttar skyrtur sem tekið er frá Dolce and Gabbana 2011 og allt hitt sem tekið er frá öðrum merkjim. Ég viðurkenni að oft versla ég sjálf í H&M og geri ég sömu mistökin aftur og aftur þegar ég kaupi þar. H&M er verslun sem maður þarf sérstaklega vel að passa sig hvað maður er að kaupa. Fyrst þarf að passa gæðin á efnunum því þau eru lítil sem engin, og saumarnir illa gerðir og eiga faldarnir til með að rakna upp við enga áreinslu
Ætla ér hað segja frá reynslu minni:
Ef ég tek dæmi á síðasta ári keypti ég mér hæla skó (8cm) og ekki var það hællinn sem brotnaði heldur brotnaði botninn í tvennt í annað skiptið sem ég fór í þá. (eins gaman og það er að halda á skónum sínum í miðri samkomu)
Ég keypti kjól en faldurinn rifnaði að neðan í fyrsta skiptið sem ég fór í hann... (í góði lagi ef maður á saumavél sem ég á Ekki hér í mílanó)
Ég keypti hálsmen með 4 fjöðrum þegar ég kom heim af djamminu var 1 fjöður eftir (get kennt mér um það samt sem áður, nokkuð viss um að ég hef flækt mér í okkrum "fólkum")
Ég keypti nærföt sem voru einnota og get ég alveg talið mjög mörg önnur dæmi um boli og peysur og kjóla en nenni því ekki. En bara hér er ég búin að telja saman 150 evrur sem er 20 þús.
Eins og með margar svona ódýrar keðjur þarf að skoða vel hvaða efni er í flíkinni því H&M og eins með ZÖRU eru með mismundandi gæðaflokkur innan keðjunnar og er það merk of með "white label" sem er mjög ódýrt og algjört drasl og einnota svo er black label sem kostar aðeins meira en endist í meira en mánuð og oftar en 1 skipti (stundum er grey label þarna á milli) svo er Collection flíkur sem eru enþá dýrari og færri eintök af flíkinni.
Einnig með verslanir eins og þessar þarf að passa sig einstaklega vel á stærðum, þar sem þegar að fjöldaframleiðsla er svona svakalega mikil (og þetta er allt framleitt í asíu) þá eru stærðirnar smá ágiskun og ef það stendur 38 er það í raun og veru ekki alltaf 38! Ég fór í síðustu viku í H&M til að kaupa mér jakka og var 36 og 38 nákvæmlega sama stærðin sem er mjög furðulegt!
Svo eru stórir hönnuðir að hanna fyrir þessa keðju og sú síðasta var hún Donatella Vercase, yfir 70% af fatnaðinum var skilað vegna lélegs "quality" (orðið gæði passar helst við það) og var allt komið núna á 80% afslátt sá ég.. og voru meira segja kjólarnir sem kostuðu 159 evrur komnir niður í 30 evrur. ( þeir eru ekki einu sinni 30 evru virði verð ég að segja)
Bara svona deila pirring mínum á þessum búðum, þrátt fyrir að það sé nauðsynlegt að hafa þær svona þegar manni vantar kjól fyrir 1 kvöld en að öðru leiti er þetta bara peningatap því oftar en ekki er kjólinn ónýtur daginn eftir!
Bloggar | Breytt 20.1.2012 kl. 03:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tísku megrun?
13.1.2012 | 00:12
Gleymdi mér í smá langri pásu... en er byrjuð að blogga aftur!
Eins og með svo margir þá ákvað ég að setja mér þau áramótaheit að koma mér í form, svona borða hollar, styrkja mig og lifa heilbrigðu lífi. Ég er mjög mikið "grípa mér mat á ferðinni" manneskja svo oftar en ekki er ég með skyndibita í kvöldmat og ég fer út að borða í hádeginu. Já ég semsagt byrjaði að tala við heilbrigðara fólk en ég sjáf með mat. Ég komst fjótt að því að það er danskur kúr, Bara grænmetiskúr, kúr sem felur í sér bara að drekka vökva og annað sem virðist vera mjög vinsælt sem er að vigta allt sem fólk borðar.. Ég segi nú bara að öfgarnir hér fyrir mig persónulega eru svakalegar.. ætlast til að ég fara um með vigt og setjti ákveðin grömm í líkaman minn er ekki alveg það sem ég kalla notarlegt líf. Er ekki sirka bara hægt að segja til hvað maður þarf sjálfur að láta ofan í sig,ein kjúklingabringa og grænmeti til dæmis?! kannski fá sér mandarínu í eftirmat?
Ég lét þetta nú ekki trufla mig enda mjög ákveðin persóna og staðföst að halda mín áramótaheit svo ég fór að kíkja á líkamsræktastöðvar og kíkja á internetið eftir æfingum, þá er það nú enþá flóknara úff.. Það er eitthvað sem er Hot fitness, zumba, rope joga, þrekstigi! Ég er nú frekar mikið fyrir allt sem kemst í tísku og fell því oft fyrir furðulegum tískubylgjum en leikfimistíska? Held ég fari bara út að hlaupa með ipodinn minn og fái mér fisk í kvölmat og læt þar við sitja og vona það besta :)
Dagur 1:
Fékk mér jógúrt í morgunmat, salat í hádegismat (ekki á veitingarhúsi heldur heimagert!!!) Fékk mér svo lasagna í kvöldmat (ekki heimagert) og bjór sem er ekki alveg í anda hollustunnar en þetta er bara dagur 1 svo þetta er allt að koma já svo labbaði ég stigann í stað að taka lyftu og skokkaði í 40 min. Mér líður mjög "hollt og heilbrigt".
Ekki það væri svakalega til í ráð um æfingar sem fela ekki í sér saunu eða að hengja mig í rólur og reipi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
..að vera flottur á brúðkaupsdaginn!
23.11.2011 | 18:35
Giftingar eiga sèr jù rétt alveg eins stað á íslandi eins og annars staðar en ekki hef ég verið mjög mikið vör við tískuna tengd brúðarklæðnaði, sennilega jú þar sem flestir leigja kjólana sina þà er ekki mikid val um að breyta þeim eða ráða hvernig þeir eru, en eitt verð ég samt að segja að þessi ameriska brúðaköku kjóla "tiska" finnst mer persónulega alveg fráleit!!!!
Frà því ég var litil var ég med brjálaðar àhyggjur í hverju ég ætti að klæðast þegar ég mundi gifta mig, ég var mjög skrítið barn og snérist allt um klæðnað. Persónulega er ég ekki mjög hrifin af hvitum lit (þar sem 5 mínutur eftir notkun veit ég að ég mun klessa einhverju í hvítu fötin mín og ég veit ekki hversu glæsileg ég væri með eins og eitt stykki rauðvinsglas framan à kjólnum mínum á sjálfann giftingardaginn)
Ég spàði nú aldrei í hverjum ég ætladi að giftast enda var það aldrei neitt svo mikilvægt í mínum huga en eg var alltaf med áhyggjur af kjólnum. Oft hef ég líka hugsad afhverju eru kjólarnir allir hvitir og afhverju er allt þetta eldfima tjull út um allt!!! Nú er svo komið ad þvi (minnstakosti að móður minnar tímatali) ad það sé kominn timi til að spá í giftingu í "nánustu" framtið (gef þvi samt góð 5 ár), svo ég hef veriö ad skoða hönnudi sem gera brúðarkjóla, skoðað mismunandi trend og fleira. Hér é ítaliu er t.d. brúðurin aðeins i sjálfum bréðarkjólnum í kirkjunni svo skiptir hún um kjól fyrir veisluna, tad er t.d. mjög skemmtileg hugmynd þegar kemur að þægindum, í kína gifta flestir sig í rauöu, þad fyrir lukku og einni segja þeir að sterkur rauður litur haldi burt illum öndum..
Ég er semsagt buin ad skoða margt og mikið á netinu og það eru til svo fallegir brúðakjólar sem eru brúðarlegir àn þess ad vera klisjukenndir og hallærislegir!
Hér eru myndir af nokkrum sem eru voda fallegir:
Vogue - Editorial !!!
Runway Collection Silfur kjóll
Runway Collection silfur blúndu kjóll
Prêt à Porter - Hvitur kjóll sem er mjog einfaldur og fallegur!
Runway collection - Þessi finnst mér vera æði, lika fallegt hálsmenið sem hun er með vid hann, mjóg nutimaleg brúðardress!
Villa Carlotta Collection - Þessa er svakaleg fallegur ef giftingin er að sumri til, eins og ég segi þvi einfaldara þvi betra!
Og fyrir þá sem eru meira fyrir liti þà koma þessir til greina:
Runway collection - Þessi kjóll er mjög spes, hvitur blúndu kjóll med grænum og hvitum blómum
Romantic look: Hvitur med blàrri blundu, kemur fallega út að setja upp raudann varalit
Atalier Ameè - Hvit og svart hefur verið að koma sterkt inn hér á ítalíu undarfarin ár.. Ekki slæmur þessi kjóll!
Einnig eru nokkur brúðartrend sem ég hef aldrei skilið, jú kanski á þetta ekki við um alla og eflaust var þetta einhvern tímann flott en èg mundi alveg sleppa öllu þessu:
Hvitar neglur - neglurnar þurfa bara alls ekki ad vera í stíl við kjólinn
Að vera tanaður a brúðkaupsdaginn - tísku leifar af 1997 trendi!
Að vera með uppgreidslu og blóm í hárinu - getur komið vel út en yfirleitt bara alls ekki!
Að vera með perlu skartgripi - Ætla ekki að commenta hér en bara nei nei!
Þetta er jú gifting sem er mjög mikilvægt og er þetta stór dagur en þetta er ekki grímuball og er lika mjög gott að geta horft á myndirnar eftir 5 ár án þess að skammast sin svo öll tímabils trend er betra ad sleppa!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Flottustu gellurnar 2011
21.11.2011 | 15:54
Mikið af listum hafa verið gerðir um hver er sú sem er flottust klædd þetta àrið.. èg er nú ekki alveg sammála þessum listum enda hef èg sèð nöfn eins og Sarah Jessica Parker á toppnum, persónulega finnst mèr hún ekkert hafa verið að gera neina byltingu í tískunni, jù hún hittir af og til á flott look en annars bara alla ekki!! Svo hef èg sèð fólk eins og Olsen tvíburana sem er bara skandall og fleiri sem persònulega mèr finnst alls ekkert töff fólk...
Svo èg gerði minn lista!
Fallegar konur í flottum fötum...
Evan Rachel Wood
Súpergellan hún Evans fær mitt fyrsta sæti, ekki bara að hùn sè àvallt ofur svöl og sæt heldur tekur hùn svakalegar àhættur í klæðavali og takast þær alltaf vel. Nùna nýlega klippti hùn hárið stutt og er bara flott!!
Hèr er hùn i Gucci kjòl (S/S2012)
Blake Lively
Gosspip girl stjarnan kann að klæða sig.. Hùn er alltaf smekklega klædd en samt töff. Ljósir lokkar, platform skór og klassískir kjólar er stílinn hennar, einnig er hùn venjulegast mjög töff hversdagslega!
Olivia Palermo
Að vera fræg fyrir að vera fræg, raunveruleikastjarnan, modelið og leikonan Olivia er oftar en ekki í huganum hjá mèr þegar èg skoða trend. Hùn notar yfirleitt flíkur ofanà flíkur, smà hippa fílingur hjà henni en samt fer hùn ekki yfir línuna.
Alexia Chung:
það sem gerir hana svona töff er að hùn tekur svakalega miklar àhættur, oft takast þær bara alls ekkert vel en hùn nær samt alltaf að "pulla off" outfittin! Með sterkann casual stíl sem èg fíla í botn..
Emma Stone:
Hvort sem hùn er ljòshærð rauðhærð, í stuttum eða síðum kjòl, þá klikkar hùn aldrei. þetta àr hefur hùn undantekningarlaust verið flott!
Henni fer einstaklega vel að klæðast appelsinugulu hèr að ofan klæðist hùn Lanvin, en hèr að neðan Calvin Klein Collection.
Og svona er það!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Annie Leibovitz fyrir Vogue US
17.11.2011 | 10:19
Cover af Vogue US Desember 2011 er myndað af einum besta ljósmyndara í heimi Annie Leibovitz og sést það vel á þessu Editorial hversu góð hùn er.
Hùn myndaði Suður Afrísku leikonuna Charlize Theron í fossum í Pennsylvaniu og við strönd Rhode Island. Fyrir þá sem hafa gaman af ljósmyndun eða einfaldlega bara tísku er vert að skoða þetta Editorial og sjá Video-ið:
Charlize Theron klæðist Calvin Klein Collection og Alexander McQueen
Hé er einnig linkur að gerðar myndartökunnar!! Svo Enjoy..
http://www.youtube.com/watch?v=pNA5rCjxJ2Y&feature=player_embedded
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Einstök hönnun..
16.11.2011 | 15:52
Það gleður mig alltaf jafn mikið þegar ég uppgvöta nýja hönnuði, það þarf nú fæstum að segja að merki eins og Fendi, Dior, Chanel, Viktor & Rolf, Balenciaga og fleiri séu að gera góða hluti..
Allt sem er einkennilegt og skrítið og helst óskiljanlegt finnst mér afskaplega skemmtilegt. Föt sem er mjóg erfitt að finna út hvernig eiga að vera eða hvernig maður kemur sér í flíkina er eitthvað sem ég dregst mjög mikið að!!
..ég mun seint gleyma kjólnum sem seldur var í All Saints sem gerður var úr fallhlýf en ekki nóg með það þá var virkilega flókið að koma sér í hann (eða að minnstakosti tók það mig vel góðar 15 minutur) og hann vegur um 5 Kg en váá það er ein skemmtilegasta flík sem ég hef séð!
Hér eru nokkrir hönnuðir sem eru að gera eitthvað nýtt og öðruvisi sem hafa náð athyggli minni:
Light keeper Pendant
Adam Shulman er einstaklega flinkur við að hanna mjög einstaka skartgripi. Hèr er eitt af hans verkum sem er hálsmen með ljósi, flísatöng og skrúfjárni. Verð 900 Evrur
Gleraugu eftir Stevie Boi
Allar Skrítnustu stjörnurnar sem hafa minnsta tískuvitið hafa sett upp Stevie Boi "Sòlgleraugu" eins og m.a. Lady Gaga. Sem er mest skemmtilegast við hönnunina á gleraugunum hans er "challenge-ið" að ganga með þau àn þess að ganga á eitthvað/einhvern!
Invisible shoe eftir Andreia Chaves
Eins konst 3D skór held það þufi ekki að segja meira en það!!
Make a Wish ring eftir Bettina Nissen
Hver vill ekki brenna sig á keravaxi á afmælisdaginn sinn! Er skemmtileg hugmynd hjá henni, ekkert svakalegur tilgangur með að eignast svona en samt sætt svo þetta fær að vera með á Like listanum
Gleraugu eftir Natasha Morgan!!
Hef lítið annað að segja en Flott Flott hjà henni!
Skór eftir Alberto Guardiani
þessa þekkja reyndar eflaust margir en alltaf þegar ég sé þessa skó þá brosi ég! kæmi sér vel ef það væri "actually" snyrtidót í skónum, þà væri bara að finna lausn fyrir kortið og simann og maður getur verið töskulaus :)
Bullet hringar eftir Akillis
Flott skartgripa hönnun og þá sérstaklega þessi byssukúlu línan frá þeim
Hér er svona brot af því besta sem eru í uppáhaldi hjá mér þessa dagana.. annars er svo mikið af frábærum hönnuðum að það er erfitt að fylgjast með öllu sem er að gerast!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Modelum skipt ùt fyrir hunda!
7.11.2011 | 14:42
Nùna eru engin limit fyrir því hvað kemst í tísku og nùna sem virðist vera að koma i auknu mæli í sem "fyrirsætur", littlu hundarnir sem kallast Pug. Fleiri merki eru farin að hafa Þessa hunda sem andlit fyrirtækisinns og nokkur merki hafa gengið Það langt að nota Þà à tískusyningum. Valentino hefur gert syna hunda mjög fræga en hann à alls 6 stykki af PUG og hafa Þeir setið fyrir à ansi mörgum myndum!
Hèr eru mynir af Editorial, hundum Valentino og fleiri Pug-um:
Valentino Garavani með hundana sina Molly, Milton, Monty, Margot, Maude Maggie og Oliver.
Auglysing fyrir POLLINI
Auglysing fyrir Louis Vuitton vetur 2011
Vogue Italia
Tiskusyning hjà Mulberry
Peysa frà Markus Lupfer
Eins og mà sjà hèr eru Þessir smà hundar mjög vinsæl mòdel, einnig eru Þessir hundar mjög latir og er því lítið màl að làta Þà slaka à fyrir framan myndavèlar. Svo ef stílistum vantar model er Þetta tilvalinn möguleiki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fashion fetish
4.11.2011 | 18:28
Já, þá er ég búin að skoða nánast öll evrópu blöðin fyrir November.. Sem er mest sjàanlegt eru einkonar Fetis Editorial og veit èg ekki alveg hvort það sé að fara út í einhverja vitleysu. þetta trend hefur verið að koma svona hægt og ròlega en èg get ekki betur sèð að nùna er allt i Svörtu, leðri, blùndu, latex, jàrni og er hugsunin à bak við flest Editorial-in Bondage þ Fetis.
Semsagt vetur 2011 og 2012 er bondage leður - lace tíska, þeir sem eru "into" svoleiðis þà bara um að gera "go wild" og nota latex leggins og strappa leður bönd yfir kjòla og boli :)
Hèr eru nokkrar myndir frà Editorial à þessum mànuðum:
Lara Stone fyrir VOGUE japan
Cover Numero Frakkland
Editorial ùr Schön
Make - Up - Givenchy
Annað sem kemur við Fetish eru hlutirnir sem hönnuðir eru að selja og hvernig stjörnurnar klæðast:
Alexander McQueen - Hàlsòl
Skòr eftir Noritaka Tatehana
Taska frà Fleet Ilya
Ledur corselet frà Una Burke
Leður hálsmen - Margir hönnuðir að gera svona
Nú er tilvalið fyrir alla laumu Fetish aðdáendur að fríka smá út og byrja að strappa sig með Leður ólum því það virðist vera bara hið besta mál og ekkert skrítið við það.
Ég var á Næturklúbbi hér í mílanó og sá þar ansi marga bæði með Keðjur um andlit og einnig Leður ólar um hálsin og svona Leður axlir og var bara gaman að sjá smá tilbreytingu og smá "agressive" tísku
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Að vera flottur og þurr í rigningunni
27.10.2011 | 10:42
Hèr i Milano hefur verið alveg einstaklega heitt þetta sumar og haust, hèr hefur verið um 30 gràður þar til nù! það var à þriðjudaginn sem èg var à leiðinni í vinnuna og svo flott à þvi. Var bùin að gera hàrið à mèr, màla mig og i tilefni dagsins fòr èg í hàa hæla sùper gella þar à fer eða svo hèlt èg! Steig ùt ùr ibùðinni klukkan hàlf 9 að morgni og fann að það rigndi eins og enginn væri morgundagurinn. Auðvitað var èg í stuttum blazer-jakka en með klút um hàlsinn sem èg hèlt að mundi bjarga deginum. Svo mikill íslendingur er èg að hugsunin min er: Hver þaf regnhlyf, svo èg à auðvitað ekki regnhlyf. Meðan èg var að hoppa um eins og hàlfviti til að forðast pollana sà èg að allir ítalarnir voru svo poll ròlegir með fancy regnhlyfar og í hlyfðarfatnað. Eftir að hafa beðið i um 15 min eftir strætó og hann snarstoppaði i polli fyrir framan mig, þá þegar èg loks komst til vinnu var èg ekkert sæt lengur, með màlingu niður à kinn og öll rennblaut þökk strætòsinns.
Svo èg fòr að hugsa, þar sem það rignir oft á viku á íslandi þá ætti að vera meira um regn-fata/regn-aukahluta tísku á íslandi. Mikið er um tísku sem tengist regni hèr, bæði í fatnaði og stígvelum einnig hef èg sèð allskonar aukahluti semtengjast þvi að hlyfa regni. Rigningin à islandi er jù alltaf ùt um allt en þà er bara um að gera að klæða sig frà toppi til tàar i föt sem hlyfa regni..
Sterkasti hönnuðurinn sem hannar regnfatnað og sà vinsælasti er Burberrys:
Auglysing
Stigvel Burberry - 795 Evrur
Burberry Prorsum - 1.490 evrur
Aðrar sniðugar hugmyndir og flottur regnfatnaður:
Hunter - Gold (145 Evrur)
Pollini stivel
PVC- leggings
Fulton Regnhlyf (20 Evrur)
Numbrella regnhjàlmur (30 Evrur)
Hjàlmurinn i notkun
Finnst hjàlma lausnin algjör snilld, hendurnar eru lausar og ekki möguleiki að hann fjùki upp. Eina er að maður tekur kannski smà plàss..... en hàrið helst alveg griðalega fint! www.numbrella.com
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stjörnufrægar smákökur
25.10.2011 | 15:39
Ekkert kemur manni lengur á óvart þegar kemur að tísku, en eitt skrítnasta trendið i dag eru littlu smákökurnar Macaroons. Oft er nù ákveðinn matur í tísku og man èg bara hèrna rètt fyrir àri eða svo var ekki hægt að fara út að borða nema það var sushi þvi allir elskuðu sushi svo mikið. það furðulega samt við þetta trend eru að ljòsmyndarar eru æstir í að nota þessu marglituðu littlu kökur í "fashion editorial" og hafa ýmsir tisku hönnuðir gert skartgripi sem lýta út eins og kökurnar. það nýjasta er þó að hönnuðurinn Matthew Williamson hannaði box undir Macaroons kökurnar frà fyrirtækinu Ladurée's (boxið inniheldur 6 kökur og kostar það 20 Evrur).
Deilur hafa verið um hvaðan kökurnar koma, sumir halda þvi fram að fyrsta kakan hafi verið gerð i Feneyjum en aðrir segja Paris. Kökurnar koma með eins mörgum bragðtegundum og litirnir eru eða um 15 tegundir.
Hèr eru nokkur dæmi hvernig kökurnar hafa verið notaðar i myndatökur og einngi "fræga" boxið efir Williamson:
Box eftir Matthew Williamson fyrir Ladurée's
Boucheron hringur ( 10.000 Evrur)
Beauty Editorial
Lady Gaga - Fashion Editorial
Verð nú að viðurkenna að þessar kökur eru litlar og sætar og þær sem èg hef smakkað eru mjög gòðar þá skil èg samt ekki alveg þennan æsing yfir þeim. Hèr í milano hef èg lika eingungis sèð þær seldar á einum stað i miðborginni og kosta þær um 300 kr stykkið.
Ekki allir hafa það í sèr að baka þ.a.m. èg en fyrir ykkur bestu þà er uppskrift af þessum kökum hèr à ensku: http://www.marthastewart.com/318387/french-macaroons frà Martha Stewart
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)