Færsluflokkur: Bloggar

Hjúkkubúningar vinsælir í Milano

Ég sá myndina Horrible bosses í gær og eina sem ég gat hugsað er pff ég vildi óska að yfirmenn (í ft.) mínir væru svona skemmtilegir! Meina að ætlast að fá stöðuhækkun þegar þú færð borgað?? Eiga yfirmann sem djammar of mikið??? Yfirmann sem er smá skotinn í þér?? Ég ætti nú að segja handritshöfundi þessa myndar að "joina" mig í tískuheiminum, þá mundi hann skilja hvað væri að vera með lélega yfirmenn. Ég lærði jú að vera stílisti í Milano í 3 ár og er núna að taka Stage hjá Calvin Klein sem eftir háskólanám þýðir hér að þú færð ekkert borgað en  þú átt að vera til staðar fyrir alla og Alltaf. Ef þú gerir mistök (þar sem enginn hefur tíma til að kenna þér og þú neiðist til að læra allt sjálfur) þá má búast við að einhver komi og gargi á þig á ítölsku sem er jú reyndar fallegra en á ensku og ofan á allt þetta þarftu að vinna líka um helgar. Vikan mín er búin að vera 68 tímar í vinnu, er búin að snúast í kringum ritstjóra frá öllum helstu blöðum í heimi, Vogue, Elle, Marie Clair, I-D og fleirum og fólk í þessum stöðum er ekkert svakalega kurteist né almennilegt.. Ég játa mig sigraða, af hverju lærði ég ekki bara lögfræði eða viðskiptarfræði eins og hinir 80% af íslendingum, ég þurfti að fara  erfiðu leiðina bara svona til að fá "smá" challenge en ég sé ekki eftir neinu er að bíða eftir að Franca Sozzani stígi niður svo ég geti gripið starfið sem Editor in Chief hjá Vogue Italy. Um að gera að setja markmiðið hátt á tímum eins og þessum. En í dag þá sit ég heima "veik" (meira lömuð af þreytu) reyna að forðast yfirmenn mína og skoða tísku sýninganar sem ég auðvitað missti af um helgina vegna vinnu :)

Þar sem ég byrja þetta á neikvæðu nótunum held ég því hér áfram!! Raf Simons fékk boð um að verða Creative director fyrir Dior en gefur það honum rétt til að eyðilegga nafn Jil Sander? Ég beið spennt eftir Jil Sander sýningunni, því miður var ég látin, af einum af yfirmönnum mínum, taka leigubíl um alla borgina til að ná í kjóla og skó og svona smotterý hér og þar allann laugardaginn svo ég sá sýninguna á litlu myndum í gegnum símann minn. Ég ætla að geta mér til eftir að hafa séð þessa sýningu að Mr. Simons sé að bíða eftir að verða rekinn frá Jil Sander svo hann geti tekið Dior stöðunni án nokkurs samviskubits. Ég set inn nokkrar myndir frá þessari sýningu sem minnir einna helst á prufu fyrir nýja spítalabúninga. Helmingurinn af þessu Collection er hvítt og minnir á hjúkku outfit frá 50 áratugnum svo eru þarna sú allra verstu munstur sem ég hef séð og síðast kom svo brúðarlína. Eitt veit ég að ég mundi aldrei gifta mig í þessum kjól - Svo á til að stytta dóminn á þessari sýningu niður í aðeins eitt orð: OJ!

Jil Sander S/S 2012

 Jil sander S/S2012

Jil sander S/S2012

Jil sander S/S2012

Jil sander S/S2012

Jil sander S/S2012

 

Ég ætti kannski að láta stílista Mad Men vita af þessari línu ef þeir hafa í huga að senda einhvern á spítala.. Ég mun skrifa seinna um jákvæðu hliðina á þessu öllu saman, passa mig að koma Jil Sander sýningunni út úr hausnum á mér!

Ansy 

 

 


D&G kveður

Ég er núna alveg að missa mig í spenningi yfir tískusýningum, mér líður eins og 13 ára gömlum strák sem er yfir sig spenntur á gamlárskvöld. Ítalía er svo rík af mörgum frábærum hönnuðum það er hægt að telja endalaust Gucci, Max Mara, Salvatore Ferragamo, Cesare Paciotti, Fendi, Dolce and Gabbana, Prada, Miu Miu, Armani, Versace, Valentino, Costume National svo eittherjir séu nefndir.... það er hægt að nefna alveg endalaust af merkjum en það gerir Milano tískuvikuna alveg einstaklega spennandi og skemmtilega.

Ég sá í dag "boðskort" eh boðskort er svakalega "understatement" þar sem kvöldmaturinn í þessu boði kostar rétt aðeins 1,64 milljónir og ef maður vill taka heilt borð fyrir 5 manns fær maður afslátt eða 6,3 milljónir. Þetta kvöd er að þessu sinni haldið í Milano og er til  styrktar AIDS rannsóknum. Svo ef þið eigið alveg hellings nóg af pening og hafið ekkert að gera á laugardaginn getið skellt ykkur í smá dinner í milano: http://www.amfar.org

... en aftur að tískusýningum en aðal frétt daginns er að D&G label eitt frægasta merkið frá Dolce and Gabbana er að hætta. Þeir ákváðu að hætta með þessa línuna en þessi lína hefur verið fyrir yngra fólkið og var því ódýrari. Ég er búin að segja að mikið af munstri og mikið af litum sé ljótt og ég stend við það en guð hvílik dásemd frá D&G collecton. Það voru jú fullt af litum og fullt af munstri en fötin pössuðu svo vel saman, munstrin minna helst á klúta og sérstaklega á gömlu slæðurnar frá Chanel. Fötin eru mjög sexy án þess að ganga of langt svo fötin henta við öll tækifæri. Sumarleg lína, falleg hreyfing á kjólunum og já svakalega vel gerð þessi lína frá þeim líka allt annað en maður hefur verið að sjá frá hinum - endilega líka að taka vel eftir skónum svakalega skemmtilega útfærðir. D&G collection er fyrir Sexy hippar árið 2012 - LOVE IT!

D&G S/S 2012

D&G 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

 D&G 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

D&G 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

Það voru svo mörg merki í dag sem eru mikilvæg í tísku heiminum en ég sá sýninguna af PRADA í dag streaming, það er einmitt það merki sem ég fíla svona upp og niður, þessi sýning var því miður meira niður á við. Allars sýningarnar í Mílanó hafa sýnt mjög sexy og kvennleg föt, stutta kjóla, gegnsæ efni og háa skó en PRADA fór að mínu mati smá geyst í þetta og er jú þeirra sýn á næsta sumar að vera með mikið bert á milli. Ég veit ekki með aðra en það hafa nú fæstir líkama á við súpermodel það er að vera 1.80 og 60 kg en bert á milli finnst mér bara ákaflega 90's gone wrong á öllum einstaklingum! Sýningin skiptist niður,bert á milli og svo er einkonar eld þema sem ég botna heldur ekkert í. Sýningin var ekki alveg að gera sig fyrir mig ekki miða við hinar allar sýningarnar sem hafa verið sýndar hér í Milano. Hér má sjá myndir af mallakútunum:

PRADA S/S 2012

PRADA ss 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

PRADA ss 2012 

 

 

 

 

 

 

 

PRADA ss 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

Jæja ætla láta þetta nægja í bili fyrir þá em hafa mikinn ákuga á tísku vil ég einnig mæla með sýningunni frá FENDI og Max Mara sem voru í dag og Alberta Ferretti sem var í gær.

-Ansy 


Tískuvikan komin til Milano

Milano byrjar nù betur en hinar borgirnar en nùna er loksins komið að Milano fashion week. Vikan hjà mèr er nokkuð gòð, fèkk að hitta hönnuðinn sem hannar Men‘s Collection fyrir Calvin Klein hann Italo Zucchelli, en svo  frètti èg að èg verði vist að vera à  blaðamanna fundinum sem er à sunnudaginn, sem var mun minna gaman. Aðeins eins dags frí Þessa vikunna og èg sem ætlaði svo að fara ùt að sjà allt fallega fòlkið í bænum, en mèr verður vist að nægja að sjà krumpuðu bòtox gellurnar sem vinna með mèr!

 Í gær startaði heldur betur vel tískuvikunni  hèr í Milano með syningur frà Gucci. Eg reyndi að horfa à syninguna í live streaming à netinu en það gekk bara ekki ekki eins og èg gerði ràð fyrir svo style.com varð fyrir valinu, en syningin er sù allra besta fram að þessu. Gucci collection hefur verið misjafnlega gott/slæmt síðustu àr, en collection sumarið 2012 er í alla staði mjög gott, bæði eru detailin à fötunum àkaflega vel gerð og mà þà sèrstaklega nefna línurnar framan à dragtarbuxunum sem minna helst à (karlmanns) jakkafatabuxur. Það er auðsjàanlegt að hùn Giannini hafi verið að undir àhrifum frà 20 àratugnum, mikið var um stutta jakkar, dragtarbuxur buxur, skyrtur og mjög fallegir kokteilkjòla.

Hèr eru myndir frà sýningunni sem og myndir frà Chanel 1920, hèr sjàst àhrifin frà 20‘s.

chanel1920

Chanel 1920-1927:

Hèr mà sjà kjòla frà Coco Chanel frà 20 àratugnum og er auðvelt að sjà sömu einkenni à fötunum frà þessu tímabili og à nýja collection línunni frà Gucci.

 

 

chanel1926-27

 

 

 

 

 

Hèr er nýja linan frà Gucci èg vona að fòlk verði eins hamingjusamt þegar Það sèr Þessa sýningu eins og èg var..

GUCCI S/S 2012

Gucci 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gucci 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gucci 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gucci 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þar sem Þeir breyttu syningunni sinni à síðustu mínutu voru mun færra VIP's à syningunni en vanalega. En Hùn Franca Sozzani lèt sig a syninguna en hùn er Editor in Chief hjà Vogue Italy

franca sozzani


Trend fyrir sumar 2012

Ég er i of gòðu skapi til að skrifa um hvern og einn hönnuð sem hafa nù þegar sýnt á London Fashion week. Ég er bùin að biða eftir þessum degi til að sjá Burberry Prorsum sýninguna en svo virðist vera að þeir hafa eitthvað misskilið að þetta àtti að vera sumarlina því það er ekkert sumarlegt við þessa línu, hún minnir mann óþægilega mikið á hvernig á að vera töff í vetrarútileigu. Með allri virdingu fyrir hönnudi Burberry honum Christopher Bailey sem segist hafa fengið innblàstur frà allskonar listamönnum þá næ ég þessu bara ekki en flottar kápur þá fyrir Þar næsta vetur ef einhver mundi vera farin að hugsa svo langt fram í tímann.

Þessar flikur fà mann ekki til að hugsa: Ah það er sumar og mèr langar i ís!!BurberryBurberry

En það sem hefur glatt mig allra mest à London tískuvikunni eru Trendin sem hönnuðir hafa verið samstiga med, mikið er af dökk bláum flíkum, stuttum víðum buxum, tvöföldum kjólum með gegnsætt yfirlag og svo Silfurlitað. Þá er allt frá  silfurlituðum kjólum, drögtum og pilsum, liturinn  silfur er mjög praktiskur og fallegur. Gengu vel með öllum litum og að mínu mati er liturinn afar kvenlegur og elegant. Hér má sjá brot af collection sumar 2012 frà nokkrum hönnuðum :

Giles S/S 2012

Hèr mà sjá silfraðann blazer jakka fra Giles sem hèlt sina sýningu i London. Þemað á sýningunni voru svanir og var allt mjög draumalegt og fallegt. Hann var med mjog mikid af silfurklæðnaði í sinni sýningu.

 Giles ss 2012 Giles ss 2012Giles ss 2012

 

Todd Lynn S/S 2012

Þessi hönnuður breytist nú ekki mikið frá ári til árs en hann hannar falleg föt, shapar línur, smá rable look á collection línunni en hún er flott. Hann skreytti margar flíkur með sikrisnælum sem gefur meira punk stíl en silfrið var einnig vinsælt í hans línu:

 Todd LynnTodd Lynn

Hér er einnig einn bolur sem hann gerði í samvinnu við skartgripahönnuðinn  Shaun Leane sem ég er viss um að við eigum eftir að sjá í öllum stæðustu tísku blöðum á næstu mánuði, alveg tilvalin flík í mydartöku:

Todd Lynn

Christopher Kane S/S 2012

Þeir sem hafa brjálæðislega gaman af tísku, fötum og fatagerð munu elska þetta merki. Kjólarnir eru settir svo skemmtilega saman og eru þeir flestir gerðir úr mörgum lögum af efnum og frábærlega útfærðir. Flott silouette og virkilega skemmtilegt collection, en á öðrum nótunum eru þetta allt meira og minna ónothæf föt og gagnslaus en engu að síður skemmtileg. Hann sýndi þó nokkrar flíkur í silfri:

00010m_1110427.jpgChristopher Kane ss12

Svo þá hafi þið það.. nú vitiði að ef þið eigið silfurlitaðann kjól næsta sumar þá samkvæmt tískunni eru þið kúl!

  

 


Litadýrðin veldur augnskemmdum

Jæja þá, þetta blogg átti nú ekki að vera svona vel fókusað á tísku en þar sem ég datt inn á þetta  á  tísku vikunni er varla annað hægt. Skrifstofan hjá Calvin Klein er að springa þessa stundina (ekki eins og sýningin hafi verið í milano), allir á hlaupum og allir eru fyrir öllum og allir að trufla alla, mjög afslappandi og kósý tími í vinnunni huh sem byrjar klukkan 8 á morgnanna og lýkur svona um kvöldmataleytið þegar ég þykist þurfa að fara á klósettið og sný ekki aftur til sætis.

En tískan já, ég sný mér aftur að London. Það sem pirrar mig einna helst þetta árið er að allir hönnuðurnir eru að reyna svo mikið og svo mikið af öllu að tískan virðist vera  frekar rótlaus og erfitt að finna línuna í trendi. Jújú það er auðvitað ákveðin element sem standa upp úr en margir ganga of langt með þeman sín og missa sig smá í litagleði.

Þá má helst nefna Matthew Williamson hann einmitt byrjar sýninguna á mjög kúl dressi með „japanese blossoms“ kjól og fallegum blazer jakka en svo fer sýningin bara niður á við. Dressin eru illa sett saman og mjög stefnulaus collection línan hjá honum.

Peter Pilotto Hér er annað dæmi um að hönnuð sem tók þemað sitt mjög bókstaflega. Ætli hann Peter Pilotto hafi verið í smá safari pælinum???? Jah það er nú spurning!!! Þetta er því miður ekki eina svona dressið í línunni, en veit ekki hver mundi klæðast þessu og hugsa, með allar flugurnar í kringum sig, Ég er æði lítandi út eins og illa ræktð blómabeð!

 

 

 

 

 

 

Ohhhhhhhhhhhhh unaður sé bara fransk „film noir“ svarthvítt þegar ég sá sýninguna hjá Marios Schwab. Svo fallegir kjólar, flestir hlýra eða hlýralausir með 2 földu efni (lituð að innan og svo gengsætt yfir). Rómantískt yfirbragð á þessum stíl svo eina sem kemur í hugann á mér er  ohhhhhhhhhhhhh sætt! Þeir sem fíla 50‘s style af kjólum er þetta alveg merkið..

Mulberry eiMulberry ss2012ns og ávallt sýndu flottar töskur og var mest áberandi töskurnar úr gulu regnplasti, einhvernvegin virkuðu þær samt sem og  "lookið"  það sem þeir mixuðu gulri regnkápu við mjög elegant kjól. Ekki það að Mulberry sé ekki fallegt merki þá komu þeir samt skemmtilega á óvar með nýju línunni sinni. Var einstaklega hrifin af tvískiptu kjólunu. (mynd hér við hliðin á)

 

 

 

 Vá vá vá Topshop Unique var alveg með vinninginn í dag. Allt svo svakalega fallegt hjá þeim, einfaldir litir eða svart,hvítt og gull að mestu leiti. Skemmtilegar línur á fötunum oTopshop ss2012g þá sérstaklega hálsmálum, sem var skemmtileg tilbreyting frá öllum litglöðu skyrtunum sem hinir hönnuðurnir hafa misst sig í. Þeir sýndu hæfilega fjölbreyttni  með kjólum, leggins og jökkum. Ég væri alveg til að komast showroom hjá þeim og fá „lánað“ eins og 1 kjól og jakka. Eina sem vantaði voru aukahlutir, þeir hefði alveg mátt sýna eins og eina eða 2 töskur en að öðru leiti er allt gorgeuos í þessari línu.(mynd úr sýningnni hér til hliðar)

 

 

En svona í lokin verð ég að gefa athyggli á ljótustu náttfata hönnun ársins eða hvað sem þetta á að vera frRichard Nicoll ss2012á hönnuðinum Richard Nicoll, sumir kalla hönnunina hans list en það er þá list sem ég skil ekki. Mundi ekki einu sinni sofa í þessum fötum svona bara ef nágrannarnir eða póstmaðurinn mundi koma auga á mig


 


Önnur lota: London!

Jæja, sunnudagur og ég er svakalega hress og fersk!!!  Í stað þess í gær að fara út í aperitivo (ítalskt orð fyrir kokteil drykkju) þá ákvað ég að vera heima og byrja á að fara yfir sýningarnar frá London. Úff ekki man ég til þess að sýningarnar væru alltaf svona margar.. mér tókst þetta á endanum og sá allar sýningarnar sem komnar eru á einu bretti í gærkvöldi/nótt!

Fyrstu hönnuðurnir hafa sýnt í London og bíð ég spennt eftir áframhaldinu því vikan í London byrjaði vel og er ég mjög glöð í mínu litla hjarta. Fötin eru mun meira "classical", einfaldari litir, minna um munstur og skemmtilegri stíll. Það sem komið er af ss 2012 collection má segja að næsta sumar verður mikið um belti í öllum stílum, stórar töskur, "platform"hælar í litum, mikið um gegnsæu efni og einnig stórir hattar. 

Hér koma nokkri hönnuði sem stóðu upp úr á góðann góðann og slæmann hátt - fyrir þá sem nenna ekki að skoða Allar þessar sýningarnar.. 

Ég vil byrja á að nefna merkið Basso and Brook, það eru ef till vill einhverjar manneskjur sem eru svo svakalega litaglaðar að það nægir þeim ekki að vera bara í 3 til 5 litum, þá er þetta merki alveg tilvalið fyrir þau. Ég sem er með fullkomna sjón þurfti að setja á mig gleraugu eftir að hafa skoðað þessa sýningu. Litirnir eru æpandi og munstrin alltof mörg of á hverri flík. Segi við þessu merki less is more, sem þau greinilega skilja ekki!

 

Og verðlaun fyrir ljótasta print vikuna fer til House of Holland. Kræst, lokið augunum og ímyndið ykkur baby bláar buxur með myndir af skýjum, þrí lituð gegnsæ skyrta (fjólublá,lillablá og bleik) og til að toppa „lookið“ snáka skinn axlabönd já og ekki má gleyma snáka skinn skónum. Sumir eiga bara alveg að láta eiga sig að hanna föt ekki nema þá kanski barna náttföt eða dúka í mesta lagi! (hér að neðan er eitt skemmtilegt "look" frá þeim)

House of Holland ss2012

 

Þá komu aukahlutirnir frá Jeager London á óvart, stór skemmtilegir hattar, sólgleraugu og töskur frá þessum hönnuði. Fötin aftur á móti  í þessari línu eru ósköp lítillát og einföld, ekkert sem fær mann til að stökkva til London að kaupa. Collection línan verður alltaf að vera smá ýkt og meira ævintýraleg. 

 

 

Ég held að mörgum íslendingum muni líka við hönnunina frá Willow. Falleg silhouette og flott efni í fötunum. Einnig má sjá að hönnuðurinn er svakalega flinkur við að drape-a, sem sést á nokkrum flíkum, mætti jafnvel vera fleiri flíkur í þeim dúr. Stuttir kjólar, síð pils og pálmatré er það sem má sjá i þessari línu.

 

Vivienne Westwood hefur lengi verið  ein af mínum uppáhalds. Sýningar hennar eru litríkar og skemmtilegar  og ef ykkur finnst ekki gaman af tísku þá getið þið glaðst yfir módelum í allt of háum hælum dettandi hér og þar um sýningarpallinn. Línan hennar þetta árið Red Label by Vivienne Westwood var eins og svo oft áður alveg frábær, dragtirnar voru æði og var þar sérstaklega ein köflótt dragt sem ég tók eftir. Falleg víð hálsmál, pilsin tekin upp á hliðinni og blazer jakkar þrengdir með þunnum lituðum beltum. Sýningin endar á eld rauðum síðum, hlýralausum kjól „ to die for“. Þessi lína er „casual“ línan fyrir konur ef svo má orða og fær fullt hús stiga frá mér! (mynd hér að neðan)

Vivienne Westwood ss2012

 

Nú bara vona ég að London sýningarnar halda svona áfram svo ég geti skemmt mér í vinnunni á morgun :)


Kjaftshögg frá New York!

Þetta er mín fyrsta blogg færsla, hef séð að allir á íslandi eru farnir að blogga og fyrst mamma bættist í hópinn þá get ég ekki setið á kúlinu mínu lengur og verð að herma!

Ég er búin að sitja í vinnunni alla þessa viku og eyða meira og minna öllum tímanum mínum að horfa á tísku sýningarnar frá new york eða þá lesa gangrýni eða skoða myndir. Þar sem vinnan mín felst í að stílisera fólk fyrir sjónvarp og finna áhugaverð "look" þá nánast tengdist þetta vinnunni minni! 

Eftir þessa viku stend ég uppi orðlaus...... HVAÐ ER AÐ SKE! Tískan fyrir sumar 2012 jú hefur ákveðinn stíl og það má sjá mikið af blúndu, gengsæju efni, plasti, og printi. Einnig eru sterk þema í gangi eins og hjá Michael Kors með safarí þema, Threeasfour fóru í pólitískt þema og fleira í þessum kanti. 

Vonbrigði vikunnar í New York var jú Michael Kors hann hefur alltaf gert svo hreinar og fallegar línur, fötin hans alltaf verið mjög elegant en þetta árið var honum í huga Afríka svo sýning hans minnti á þorp sem var étið upp af tígrisdýra kápu. Línana hans var að mestu leiti græn - brún með slettum á og öll rifin og peysurnar hans semeru nú eitt af hans "signature looki" minntu helst á kartöflupoka.

Sama get ég sagt um Mr. Jacobs, en línan hans  Marc by Marc Jacobs kom einnig sérstaklega leiðinlega á óvart. Þótt hans stíll hefur aldrei heillað mig neitt sértaklega þá hefur hann jú alltaf skemmtileg element í sýngunum, þetta árið skreytti hann modelin fyrir SUMAR tískuna með þessum forljótu húfum og vafði svo modelin í eitthvað sem virtist vera endurunnir plastpokar.. Eitthvað sem virðist vera mjög óþægilegt og enþá óþægilegra í sumarhita.

Einnig verð ég að minna á sýninguna hjá Donna Karan New York (DKNY) veit ekki hvort það sé bara ég en eina sem ég sá úr þessari sýningu er IKEA málverkin! 

Printin þetta árið skil ég bara ekki, minna helst á barna rúmföt! Það er ekki að sýningarnar hafa alla verið vonlausar það var bara ekki nein sýning sem tókst að heilla mann upp úr skónum.

En burt sé frá þessu öllu get talið upp endalaust af sýningum sem voru með ansi vafasöm föt en ég vil nú frekar tala um það sem var gott og hægt að nota hugmyndir frá þeim.

Sem stóð alveg upp úr var Oscar  de la Renta, sýningin hans var voðalega falleg. Byrjaði með high volume pilsum sem tóku allann sýningar ganginn. Litirnir voru skemmtilegir og í sýningunni voru fallegar draktir sem og kjólar. Hann fór ekki í öfgana með sýningar fötin, sem margir hönnuðir eiga til með að gera, þannig maður fær góða hugmynd hvernig línan hans er árið 2012.

Einnig kom línana hennar Vicroriu Beckham skemmtilega á óvar, fötin voru mjög kynþokkafull mjög "playfool" og sá maður fallega og hreina liti. Fallegt hvernig hún setur saman bláann og apperlsínugulann, en eina sem stakk í augun voru skórnir sem voru támjóri að framan með áföstum  leður legghlýfum.

Chado Ralph Rucci fékk standi klapp eftir sína sýningu enda voru þarna margir kjólar sem maður á án efa eftir að sjá á rauða dreglinum. Hann notaði mikið af ullar efni og hesta hárum í fötin en það voru þarna smá plast í fötunum sem var óþægilegt að horfa á en hann kanski býst við miklu regni næsta ár svo ég segi ekkert neikvætt um það, sýning hans var svo falleg!! 

Proenza shoulders voru samir við sig, settu fram falleg föt og fallega sýningu. Fötin höfðu fallegar línur og voru fötin  mjög "artistic með geometric línum". Komu nokkrir vafa samir kjólar en þessi lína hefur verið smá blanda af hönnun og art svo allt er fyrirgefið. Falleg lína frá þessu merki eins og ávallt.

Merkið sem kom mér á óvar líka var Bill Blass, lógóið þeirra er akkeri og voru fötin í sjóarastíl en það sem stóð upp úr í sýningunni voru  fallegir blazer jakkar, bláir með gylltum tölum sem segir það að blazer jakkarnir eru ekki að fara neitt úr tísku á næstunni svo um að gera að kaupa sér ef þið eigið ekki einn slíkann. 

Áhugaverðasta sýningin og ef þið hafið ekki séð þessa sýningu mæli ég 100% með að þið farið á annaðhvort www.style.com eða þá á youtube og horfið á sýninguna frá Imitation of Christ. Þetta merki er einmitt mjög artistic og segir hönnuðurinn einmitt að tískann sé bara einn parturinn af þessu merki. Það skemmtileg við þessa sýningu varað hún var sett upp eins og brúðkaup og modelin voru eins og brúðhjón og brúðarmeyjar. Einnig í endann á sýningunni var eitt par sem gifti sig, svo þessi sýning er allt örðuvísi en hinar. 

Svona í lokin verð ég að skrifa smá um Calvin Klein þar sem ég er búin að sitja fundi, kynningar og fleira á þessari línu. Hann Francesco Costa hönnuðirinn fyrir Calvin Klein Collection Konur er litill maður að hanna fyrir háar konur. Jákvæða er að hann missti sig ekki í print viltleysu og í litagleðu eða fór að vefja  plasti utan um módelin svo jú hann fær plús fyrir það og læt ég það vera mín síðustu orð af New York fashion week. Núna er að halda áfram með næstu borg! 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband